lfasteinn Raufarhfn.Asent efni - Hafr Hreiarsson - Lestrar 614 - Athugasemdir ( )
![Steinn og Erlingur skrifa hr undir viljayfirlsingu um samstarf milli lfasteins ehf. og Heimskautsgeris Raufarhfn.](/static/news/Steinn_og_Erlingur.jpg)
Mánudaginn 11. febrúar var haldinn kynningarfundur um áformaðan flutning fyrirtækisins Álfasteins til Raufarhafnar og þátttöku þess í uppbyggingu Heimskautsgerðis. Að fundinum, sem haldin var í félagsheimilinu, stóðu forsvarsmenn Álfasteins og Heimskautsgerðis ásamt Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga, og sóttu hann um 40 fundargestir.
Álfasteinn á Raufarhöfn – kynningarfundur
Aðdragandi málsins er sá að Erlingur B. Thoroddsen, frumkvöðull að Heimskautsgerði var að kynna sér hvaða möguleikar væru til þess að grjótvinna við Heimskautsgerðið gæti farið fram á Raufarhöfn og skapað þannig atvinnu á staðnum. Eftir að hafa kynnt sér málið m.a. erlendis, bar fundum hans og Steins í Álfasteini saman. Í fyrstu var hugmyndin að leigja vélar af Álfasteini til verksins en við nánari athugun kom í ljós að flutningur fyrirtækisins til Raufarhafnar gæti haft margvísleg samlegðaráhrif í för með sér.
Steinn Eiríksson, framkvæmdastjóri og eigandi Álfasteins kynnti sögu fyrirtækisins, núverandi stöðu þess og áform um fyrirhugaðar breytingar sem m.a. fela í sér flutning verulegs hluta starfseminnar til Raufarhafnar.
Álfasteinn er rótgróið fyrirtæki sem stofnað var á Borgarfirði eystri 1981. Framleiðslan hefur frá upphafi snúist um steinvinnslu sem byggðist á fjölbreyttu hráefni á staðnum. Auk fjölbreyttrar gjafavöru er sérvinnsla með greftri í stein stór hluti af framleiðslunni auk þess sem Álfasteinn framleiðir legsteina og fæst við skiltagerð. Auk framleiðslunnar rekur Álfasteinn verslanir á Borgarfirði, á Laugavegi í Reykjavík, svæði í Flugstöðinni í Keflavík, Eden í Hveragerði og þjónustu- og sölumiðstöð á Axarhöfða í Reykjavík.
Það kom fram í máli Steins að það sem helst hefur hamlað vexti fyrirtækisins er ekki eftirspurn eftir vörunni heldur vandkvæði við að manna framleiðsluna á Borgarfirði eystri. Í þeirri markaðsáætlun sem hann kynnti á fundinum gerir Steinn ráð fyrir því að flytja stærstan hluta af núverandi framleiðslustarfsemi á Raufarhöfn auk þess sem skrifstofa og stjórnun færist þangað. Á Raufarhöfn eru einnig áform um magnframleiðslu á byggingarsteini sem fellur mjög vel að því verkefni að reisa heimskautsgerði.
Samhliða þessum breytingum er gert ráð fyrir mikilli vöruþróun og markaðssetningu á næstu árum, en vinna að því er þegar hafin. Gert er ráð fyrir að nýta fleiri hráefni til gjafavöru og listmunaframleiðslu með áherslu á íslenskt handverk og hönnun auk þess sem kynningar- og markaðsstarf verður eflt til muna.
Ýmsir þættir þurfa að vera til staðar til að þessi áform gangi eftir. Með flutninginum verður tryggt verkefni í Heimskautsgerðinu í 3-5 ár. Viðræður hafa átt sér stað við SVN um húsnæði og standa vonir til þess að SVN leggi húsnæðið inn í fyrirtækið sem hlutafé. Þá er gert ráð fyrir nýju hlutafé að upphæð 40 milljónum.
Í lok fundar skrifuðu Steinn og Erlingur undir viljayfirlýsingu um samstarf á milli Álfasteins ehf. og Heimskautsgerðis á Raufarhöfn. Stefnt er að því að þessir aðilar geri með sér verksamning sem verði undirritaður fyrir lok febrúar.
Fundargestir á Raufarhöfn sýndu þessum áformum mikinn áhuga. Kynningunni var fagnað með lófataki og strax að loknum fundi tóku gestir að skrifa sig fyrir hlutabréfum í fyrirtækinu.
Athugasemdir