"Eru Vlsungi og sveitarflaginu til sma"

Eins og komi hefur fram nokku reglulega hr 640.is hafa eir Sigvaldi r Einarsson og Hafr Mar Aalgeirsson veri meal nokkurra Vlsunga sem

"Eru Vlsungi og sveitarflaginu til sma"
Almennt - Hafr Hreiarsson - Lestrar 811 - Athugasemdir ()

Sigvaldi. orvaldur og Hafr. Ljsm. Sveinbj.
Sigvaldi. orvaldur og Hafr. Ljsm. Sveinbj.

Eins og komið hefur fram nokkuð reglulega hér á 640.is hafa þeir Sigvaldi Þór Einarsson og Hafþór Mar Aðalgeirsson verið meðal nokkurra Völsunga sem kallaðir hafa verið til æfinga með yngri landsliðum Íslands í vetur.

Þeir kappa eru fyrir sunnan þessa helgina líkt og margar aðrar því æfingarnar í haust og vetur eru komnar yfir tuttugu.

 

Sveinbjörn „sjúkraþjálfari“ Sigurðsson sendi 640.is myndir af strákunum og Þorvaldi syni sínum sem hann tók í dag í Egilshöll. Þorvaldur er FH-ingur í dag, en eitt sinn Völsungur ávallt Völsungur. Hann hefur æft með U17 ára liðinu í vetur líkt og Sigvaldi og Hafþór.

Sveinbjörn sagði strákana hafa staðið sig vel á æfingum og lagt á sig mikil ferðalög til að geta æft með liðinu. Þeir væru Völsungi sem og bæjarfélaginu til mikils sóma en athygli vekur að enginn leikmaður frá Akureyri er í hópnum. Þá eiga Reykjavíkur-stórveldin Fram og Valur engan leikmann í þessum hóp.

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr