18. apr
Orkugangan fer fram í dagÍþróttir - - Lestrar 389
Í dag fer fram árleg Orkuganga skíðagöngudeildarinnar en gangan er haldin með óhefðbundnu sniði að þessu sinni sökum snjóalaga.
Í ár er boðið uppá 3 vegalengdir, 20 km göngu, 6 km göngu og 1 km göngu.
Klukkan 10:00 var ræst frá Þeystareykjum í 20 km gönguna og klukkan 11:00 var ræst í styttri vegalengdunum.
Allir sem hafa áhuga á að koma og fylgjast með skemmtilegri fjölskyldu göngu eru hvattir til að kíka uppá svæði skíðagöngumanna.