Þóra Hallgrímsdóttir er maðurinn

Þóra Hallgrímsdóttir er maðurinn sem spurt var um þessa vikuna og kom Diddý fyrst með nafn hennar.

Þóra Hallgrímsdóttir er maðurinn
Almennt - - Lestrar 440

Þóra Hallgrímsdóttir.
Þóra Hallgrímsdóttir.

Þóra Hallgrímsdóttir er maðurinn sem spurt var um þessa vikuna og kom Diddý fyrst með nafn hennar.

Fyrsta vísbending var: Maðurinn komst í fréttir fyrir ekki svo löngu síðan. 

Þóra komst í fréttirnar strax á öðrum degi þessa árs þegar hún fór í sitt árlega sjósund. Á meðan hún fór í ískaldan sjóinn voru skór hennar og snyrtibudda tekin ófrjálsri hendi eins og lesa mátti á fréttavef Morgunblaðsins.

Önnur vísbending var: Sænska hljómsveitin ABBA vann Júróvísjónkeppnina á fæðingarári mannsins.

Þóra er fædd 12. apríl 1974 en skömmu síðar sigraði ABBA Júróvísjónkeppnina með laginu Waterloo.

Þriðja vísbendingin var: Foreldrar mannsins búa á Húsavík.

Þóra er dóttir Hallgríms Valdimarsson og Bjargar Sigurðardóttir sem búsett eru hér í bæ eins og flestir vita. 

Fjórða vísbendingin var: Maðurinn er alnafna ömmu sinnar.

Föðuramma Þóru hét Þóra Hallgrímsdóttir og var frá Halldórsstöðum í Laxárdal.

Diddý getur nálgast pizzu, franskar og gos á Fosshótel Húsavík sem gefur verðlaunin í Hver er maðurinn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744