09. júl
Tap suður með sjóÍþróttir - - Lestrar 494
Völsungur sótti Njarðvíkinga heim á Njarðtaksvellinum í Njarðvík í gær og var þetta síðasti leikur þeirra í fyrri umferð Íslandsmótsins í 2. deild.
Njarðvíkingar komust í 3:0 en á lokamínútum leiksins fékk Völsungur fékk tvær vítaspyrnur.
Sæþór Olgeirsson skoraði úr þeim báðum og minnkaði muninn í 3-2, en þar við sat.
Sæþór er markahæstur í deildinni með 15 mörk í tíu leikjum, þar af 8 úr vítum.