Tap suður með sjó

Völsungur sótti Njarðvíkinga heim á Njarðtaksvellinum í Njarðvík í gær og var þetta síðasti leikur þeirra í fyrri umferð Íslandsmótsins í 2. deild.

Tap suður með sjó
Íþróttir - - Lestrar 494

Sæþór skoraði tvö mörk úr vítum gegn UMFN.
Sæþór skoraði tvö mörk úr vítum gegn UMFN.

Völsungur sótti Njarðvíkinga heim á Njarðtaksvellinum í Njarðvík í gær og var þetta síðasti leikur þeirra í fyrri umferð Íslandsmótsins í 2. deild.

Njarðvíkingar komust í 3:0 en á loka­mín­út­um leiks­ins fékk Völsungur fékk tvær vítaspyrnur.

Sæþór Olgeirsson skoraði úr þeim báðum og minnkaði muninn í 3-2, en þar við sat.

Sæþór er markahæstur í deildinni með 15 mörk í tíu leikjum, þar af 8 úr vítum.

Hér má sjá stöðuna í deildinni 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744