Iđnađarráđherra í vörn

Katrín Júlíusdóttir, iđnađarráđherra sagđi í svćđisfréttum RÚV ađ ásakanir stjórnar Atvinnuţróunarfélags Ţingeyinga, um einhliđa ákvörđun um niđurskurđ,

Iđnađarráđherra í vörn
Ađsent efni - - Lestrar 454

Ađalsteinn Árni Baldursson.
Ađalsteinn Árni Baldursson.
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra sagði í svæðisfréttum RÚV að ásakanir stjórnar Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, um einhliða ákvörðun um niðurskurð, komi henni á óvart. Ráðherra sagði það af og frá að stjórn Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga hefði verið beitt þvingunum til að hlíta fimm milljón króna niðurskurði á gildandi vaxtarsamningi Norðausturlands eins og stjórn félagsins hefur haldið fram.

 

Í fréttinni segir Katrín það vera rangt að niðurskurður á Norðurlandi hafi verið í þeim tilgangi að setja á laggirnar vaxtarsamning á Suðurnesjum, sá samningur hafi verið löngu ákveðin og skorið hafi verið niður um allt land. Hún segir nauðsynlegt að setja hlutina í samhengi og verið sé að skera niður um 10% í ráðuneytinu. Katrín segir þessi skilaboð frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga koma sér verulega á óvart því hún hafi talið að þetta hafi verið unnið í sátt við stjórnendur félagsins.

Undirritaður situr í stjórn Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga f.h. stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Það er alveg ljóst að stjórn Atvinnuþróunarfélagsins fékk skýr skilaboð úr ráðuneytinu, það er frá undirmönnum Katrínar, um að ekki yrði staðið við áður gefin loforð um 30 milljón króna framlag til vaxtasamnings Norðausturlands á árinu 2010. Framlagið yrði skorið niður um 5 milljónir til að stofna sambærilegan samning á Suðurnesjunum. Tilkynnt var um niðurskurðinn undir þeim formerkjum að ef ekki yrði fallist á hann væri allt eins líklegt að samningnum yrði sagt upp. Það er rangt af ráðherranum að halda því fram að sátt sé meðal heimamanna um niðurskurðinn. Þetta er nú það sanna í málinu háttvirtur iðnaðarráðherra.

Aðalsteinn Á. Baldursson.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744