Hefur spilađ 300 leiki fyrir Völsung og einum betur

Sá merki atburđur átti sér stađ í leik Völsungs og ÍR í 2.deild karla sl. laugardag ađ Bjarki Baldvinsson spilađi sinn 300 leik fyrir meistaraflokk

Hefur spilađ 300 leiki fyrir Völsung og einum betur
Íţróttir - - Lestrar 230

Bjarki međ Sóley dóttur sinni eftir leik nr. 301.
Bjarki međ Sóley dóttur sinni eftir leik nr. 301.
Sá merki atburđur átti sér stađ í leik Völsungs og ÍR í 2.deild karla sl. laugardag ađ Bjarki Baldvinsson spilađi sinn 300 leik fyrir meistaraflokk Völsungs í deild og bikar.
 
Eru ţá ótaldir tugir ćfingaleikja og Lengjubikarsleikja. Ţetta er auđvitađ ótrúlegur árangur og gerir Bjarka enn frekar ţann langleikjahćsta í sögu Völsungs.
 
Bjarki kom inn á í sínum fyrsta leik í meistaraflokki 3.sept 2006 gegn Aftureldingu, ţá á 16.aldursári.
 
Helgina eftir spilađi hann svo sinn fyrsta byrjunarliđsleik, 9.sept 2006, á Húsavík gegn KS/Leiftri.
 
Bjarki er ţó hvergi nćrri hćttur og getur enn á sig blómum bćtt. Í dag er hann spilandi ađstođarţjálfari liđsins og miđlar miklu til leikmanna liđsins. Ţađ er mikill fengur í Bjarka og varla til meiri félagsmađur og Völsungur.

Á fésbókarsíđu Grćna hersins er Bjarka óskađ hjartanlega til hamingju međ áfangann og ţakkađ kćrlega fyrir frábćrt framlag sitt í gegnum árin. 

Bjarki bćtti svo um betur í gćrkveldi ţegar hann kom inn á í leik gegn Haukum og hefur ţar međ á fjórđa hundrađ leikja í handrađanum.

Ljósmynd Hafţór Hreiđarsson

Liđsmynd sem tekin var fyrir fyrsta byrjunarliđsleik Bjarka ţann 9. september áriđ 2006.

 
Ljósmynd Hafţór Hreiđarsson
 
Bjarki og Sóley Ósk dóttir hans ađ loknum leik númer 301 sem fram fór í gćrkveldi.
 
Međ ţví ađ smella á myndirnar er hćgt ađ fletta ţeim og skođa í hćrri upplausn.



  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744