Goðinn í 5. sæti eftir fyrri hlutann

Skákfélagið Goðinn tók þátt í fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga sem fram fór í Fjölnishöllinni í Grafarvogi um nýliðna helgi.

Goðinn í 5. sæti eftir fyrri hlutann
Íþróttir - - Lestrar 106

Goðinn gegn TG-ung, Smári Sig th.
Goðinn gegn TG-ung, Smári Sig th.

Skákfélagið Goðinn tók þátt í fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga sem fram fór í Fjölnishöllinni í Grafarvogi um nýliðna helgi.

Goðinn sendi eina sveit til keppni í 4. deild en lengi stóðu vonir til þess að það næðist að manna í tvö lið en of mikil forföll á lykilmönnum á síðustu dögum fyrir mót urðu til þess að aðeins eitt lið hóf keppni.

"Við höfðum þó þrjá varamenn og ákveðið var við upphaf móts að skipta grimmt inn á neðri borðin, þannig að allir tefldu amk. tvær skákir af fjórum.

Ákveðið var að leggja frekar áherslu á að leyfa þremur nýliðum að tefla svo þeir fái reynslu af því að tefla á Íslandsmóti, heldur en að stilla alltaf upp sterkast mögulega liðinu í öllum umferðunum.

Það plan gekk ágætlega upp". Segir m.a í pistli Hermanns Aðalsteinssonar formanns Goðans á heimasíðu félagsins en þar má einnig skoða myndir frá mótinu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744