GH sigraði þriðju deild á Íslandsmóti golfklúbbaÍþróttir - - Lestrar 413
Golfklúbbur Húsavíkur tryggði sér sigur í 3. deild karla á Íslandsmóti golfklúbba en keppt var í Grindavík dagana 16.-18. ágúst.
GH leikur því í 2. deild að ári, til hamingju félagar í Golfklúbbi Húsavíkur.
Á kylfingur.is segir að GH hafi haft betur í úrslitaleiknum gegn Golfklúbbi Sauðárkróks, 2-1, og sigurinn kærkominn fyrir klúbbinn eftir að hafa tapað naumlega úrslitaleiknum í 3. deild í fyrra.
Golfklúbbur Fjallabyggðar hafnaði í þriðja sæti eftir að hafa sigrað Golfklúbb Hveragerðis í leik um þriðja sætið. Golfklúbburinn Geysir féll í 4. deild og skiptir því við Golfklúbbinn Flúði sem leikur í 3. deild á næsta ári.
Lokastaðan í 3. deild karla árið 2019:
1. Golfklúbbur Húsavíkur
2. Golfklúbbur Sauðárkróks
3. Golfklúbbur Fjallabyggðar
4. Golflúbbur Hveragerðis
5. Golfklúbbur Grindavíkur
6. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar
7. Golfklúbbur Borgarness
8. Golfklúbburinn Geysir.