26. feb
Erna Sigríður ráðin launafulltrúi NorðurþingsAlmennt - - Lestrar 720
Erna Sigríður Hannesdóttir hefur verið ráðin í starf launafulltrúa hjá Norðurþingi sem auglýst var í janúar.
Erna er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og hefur undanfarið starfað við bakvinnslu og ráðgjöf hjá Sjóvá í Reykjavík.
Í tilkynningu á vef Norðurþings segir að Erna muni væntanlega koma til starfa í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík í byrjun apríl.