26. ágú
Vor- og sumarmánuðir nýttir til framkvæmda hjá OHAlmennt - - Lestrar 215
Að venju hafa vor- og sumarmánuðirnir verið nýttir til ýmissa framkvæmda hjá Orkuveitu Húsavíkur.
Á heimasíðu OH segir vinnu við uppgerð á lögnum í dæluhúsi við Kópasker hafi lokið í vor. Eldri lagnir hafi verið komnar á aldur og því kominn tími á endurnýjun.
Samhliða þessu var farið í endurbætur á stíflu við vatnsbólið á Katastöðum. Með þessum framkvæmdum er aukið afhendingaröryggi á hreinu og góðu vatni til íbúa Kópaskers og næsta nágrennis.