Völsungur áfram í VÍSAbikarnum

Völsungur gerđi góđa ferđ á Dalvík í kvöld ţegar ţeir sigruđu Dalvík/Reynir í  1. umferđ Vísabikarsins međ tveim mökum gegn einu. Ţađ var hinn ungi og

Völsungur áfram í VÍSAbikarnum
Íţróttir - - Lestrar 486

Völsungur gerði góða ferð á Dalvík í kvöld þegar þeir sigruðu Dalvík/Reynir í  1. umferð Vísabikarsins með tveim mökum gegn einu. Það var hinn ungi og efnilegi Hafþór Mar Aðalgeirsson sem skoraði fyrsta mark leiksins strax á 5 mínútu. Markahrókurinn Elfar Árni Aðalsteinsson bætti öðru við eftir um hálftímaleik er hann slapp inn fyrir vörn heimamanna eftir frábæra sendingu frá Sveinbirni Má Steingrímssyni.

 

Völsungssíða þeirra Ingvars Björns og Rafnars Orra segir svo frá leiknum:

Jóhann Kristinn gerði þrjár breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik en Hafþór Mar, Einar Már og Stefán Jón komu inn fyrir Aðalstein, Arnþór og Jón Hafstein sem var fjarverandi í kvöld þar sem hann á von á barni hvað á hverju. Liðið átti harm að hefna gegn Dalvíkingum en Völsungur tapaði fyrir þeim, 3-0, fyrr í vetur er liðin áttust við í Lengjubikarnum.

Strákarnir voru fljótir að svara eftir slaka frammistöðu í síðasta leik. Hinn ungi og efnilegi Hafþór Mar Aðalgeirsson kom okkar mönnum yfir eftir aðeins fimm mínútna leik. Elfar Árni Aðalsteinsson bætti svo við öðru markinu eftir hálftíma leik en hann slapp inn fyrir vörn heimamanna eftir frábæra sendingu frá Sveinbirni Má. Fleiri voru mörkin ekki í fyrri hálfleik og staðan 0-2 Völsung í vil.

Dalvíkingar fóru að sækja í sig veðrið í síðari hálfleik en heimamenn minnkuðu muninn úr vítaspyrnu eftir um klukkutímaleik. Elfar Árni Aðalsteinsson var sendur af velli eftir að hafa nælt sér í tvö gul spjöld þegar korter var eftir af leiknum en okkar menn kláruðu leikinn einum færri og eru þar með komnir áfram í Visa-bikarnum. Lokatölur 1-2.

Þeir verða svo með nánari umfjöllun um leikinn síðar í kvöld þegar Ingvar Björn hefur skilað sér í bæinn.



 


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744