Völsungur áfram í Mjólkurbikarnum - Akil međ tvennuÍţróttir - - Lestrar 507
Völsungur fékk Tindastól í heimsókn á iđagrćnan gervigrasvöllinn í kvöld en leikurinn var 2. umferđ Mjólkurbikarsins.
Markalaust var eftir fyrri hálfleikinn en Völsungar skoruđu snemma í ţeim seinni og ţar var á ferđinni Akil De Freitas.
Hann var var ađ leika sinn fyrsta leik fyrir Völsungs í kvöld líkt og markvörđurinn Inle Valdés Mayarí og Kaelon Fox.
Akil var aftur á ferđinni á 60. mínútu leiksins tvöfaldađi forystu heimamana og Bjarki fyrirliđi Baldvinsson gulltrygđi Völsungi sigurinn á ţeirri 82.
Tindastólsmenn minnkuđu muninn í blálokin međ marki Arnórs Guđjónssonar en Völsungur var heilt yfir sterkari ađilinn í leiknum.
Lokastađan 3-1 og Völsungur kominn í 32. liđa úrslit Mjólkurbikarsins ţar sem ţeir mćta Mídas á heimavelli.
Akil De Freitas skorađi tvö mörk í sínum fyrsta leik fyrir Völsung.
640.is fylgdist međ leiknum í höfuđstöđvum sínum á Spáni í gegnum Völsungur TV á Youtube en međfylgjandi ljósmynd tók Óskar Páll Davíđsson ađ leik loknum.