01. feb
Verðlaunin komin í húsAlmennt - - Lestrar 308
Eins og kom fram á 640.is á dögunum hlutu nemendur Framhaldsskólans á Húsavík verðlaun sem mannréttindaskóli ársins frá Amnesty International.
Nemendur skólans söfnuðun flestum undirskriftum miðað við nemendafjölda í herferð Amnesty Internatioanl, ÞITT NAFN BJARGAR LÍFI.
Verðlaunin komu í hús fyrir helgina og á myndinni hér fyrir neðan má sjá nemendaráð FSH ásamt Rakel Dögg Hafliðadóttur kennara sem leiddi verkefnið innan skólans með verðlaunin.
Með því að smella á myndina má skoða hana í hærri upplausn.