Vegagerðin semur við Mýflug út marsAlmennt - - Lestrar 248
Vegagerðin hefur samið við flugfélagið Mýflug um flug frá Reykjavík til Vestmannaeyja og einnig til Húsavíkur út mars.
Flognar verða fjórar ferðir í viku á tímabilinu 1. mars til 31. mars.
Fram kemur í tilkynningu Vegagerðarinnar að flogið verði þrjá daga í viku milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur sem og milli Húsavíkur og Reykjavíkur.
Fyrirkomulag á farmiðabókunum verði óbreytt frá því sem hafi verið á undanförnum vikum.
„Flugvélar af gerðinni Beechcraft King Air B200, sem er 9 farþegasæta vél, og Jetstream 32, sem tekur 19 farþega í sæti, verða notaðar í þetta verkefni.
Flugleiðir þessar eru styrktar sérstaklega af ríkinu til að tryggja tímabundið lágmarksþjónustu á þessum leiðum á meðan markaðslegar forsendur eru ekki til staðar, enda flugið mikilvægt fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðunum,“ segir í tilkynningunni.