Tveir Þingeyingar í U-20 ára landsliðinu í körfuboltaÍþróttir - - Lestrar 548
Góður árangur Trygga Snæs Hlinasonar körfuboltamanns úr Bárðardal hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að undanförnu sem á annað borð fylgjast með körfubolta.
Tryggvi er búinn að spila tvö keppnistímabil með Þór á Akureyri og er nýbúinn að skrifa undir samning við besta körfuboltalið Spánar, Valencia og fer þangað í haust.
En Tryggvi er ekki eini Þingeyingurinn sem gerir það gott með U-20 ára landsliði Íslands í körfubolta.
641.is geinir frá því að Snorri Vignisson frá Húsavík (sonur Vignis Siguróla og Margrétar Maríu Sigurðardóttur) er liðsfélagi Tryggva í U-20 ára liði Íslands og fer Snorri með liðinu til Krítar til að taka þátt í A-deild Evrópumótsins í körfubolta í sumar.
Snorri, sem spilar með Breiðablik í næst efstu deild hér heima, tók þátt í æfingamótinu sem nú er nýlokið og skoraði hann 15 stig í leikjunum þremur, gegn Svíþjóð, Ísrael og Finnlandi.
Snorri hefur áður spilað með U-20 ára landsliði Íslands en hann ásamt Tryggva, tóku þátt í Evrópumóti FIBA í Grikklandi í fyrra, en þar kom lið Íslands verulega á óvart og fór í úrslitaleikinn gegn Svartfjallalandi sem tapaðist naumlega.
A-deild Evrópumótsins í körfubolta fer fram dagana 15-23. júlí á Krít og geta því Þingeyskir körfuboltaáhugamenn fylgst með tveim Þingeyingum á því móti. (641.is)