Tónleikar í Menningarhúsinu Hofi AkureyriAðsent efni - - Lestrar 590
Mig langar til að setja hér upplýsingar um mjög merkilega tónleika í Hofi á Akureyri af því að ég tel að þarna sé tónlistarviðburður fyrir alla Norðlendinga sem eiga heimangengt.
Ég leyfi mér að kynna hér og minna á að á laugardaginn, 3. desember, verða í Hofi einhverjir merkustu tónleikar á
Norðurlandi þetta árið. Kristin Sigmundsson þarf ekki að kynna söngfólki, hann er einn besti - ef ekki besti -bassasöngvari heims. Víking
Heiðar Ólafsson þarf heldur ekki að kynna, þessi bráðungi drengur hefur spilað sig svo dátt inn í tónlistarheiminn á
undanförnum misserum.
Vðfangsefnið er Vetrarferðin (Die Winterreise) lagaflokkur eftir Franz Schubert við ljóð Wilhelms Müller. Vetrarferðin er í tveimur hlutum, með
tólf kvæðum í hvorum hluta og segir sögu af ungum manni, óendurgoldinni ást hans og ferðalagi hans að vetri. Mörg af þessum
sönglögum eru jafnvel orðin hluti af söngheimi Íslendinga.
Kristinn Sigmundsson hefur sungið Vetrarferðina margoft og meðal annars gefið hana út á plötu með Jónasi vini sínum Ingimundarsyni.
Gagnrýnendur voru á því máli þegar Kristinn og Víkingur stilltu saman strengi sína í vor í Hörpu að þar hefði
gerst eitthvert undur. Samvinna og samstilling þessa reynslobolta í söng af öllu tagi og hins unga píanósnillings hefði verið með
ólíkindum. Svo vel tókst til, að minnsta kosti, að þeir félagar hafa verið hvattir til að hljóðrita þessa útgáfu
sína á Vetrarferð Schuberts. Og ég veit ekki betur en það verði.
Kveðja
Sverrir Páll Erlendsson