25. jún
Tap í roki og úrhellisrigninguÍþróttir - - Lestrar 523
Völsungur tók á móti Huginn frá Seyðisfirði í 2. deild karla sl. föstudagskvöld.
Veður til knattspyrnuiðkunnar var ekki upp á það besta, rok og úrhellisrigning.
Gestirnir náðu forystunni eftir rúmlega 20 mínútna leik og þar var að verki Gonzalo Zamorano Leaon.
Þar við sat allt til á lokamínútum leiksins að fyrrnefndur Gonzalo Zamorano Leaon bætti við sínu öðru marki og lokastaðan 0-2 fyrir gestina.
Völsungur situr í 8. sæti 2. deildar með 10 stig en hér má sjá stöðuna.