Stofnfundur Garðyrkjufélags ÞingeyingaAðsent efni - - Lestrar 426
Stofnfundurinn mun byrja kl. 19:30 og að loknu hefðbundnu stofnfundarstafi mun Vilhjálmur Lúðvíksson formaður Garðyrkjufélag Íslands halda stutt erindi um sögu og starfsemi Garðyrkjufélags Íslands. Dagskránni lýkur með hinum vinsæla fyrirlestri garðyrkjufræðingsins Jóns Þ. Guðmundssonar frá Akranesi um ræktun ávaxtatrjáa á Íslandi. Jón hefur um áraraðir ræktað ýmis yrki af epla -, peru -, plómu - og kirsubertrjám í garðinum sínum heima á Akranesi með góðum árangri og hefur notað reynslu sína til þess að búa til áhugaverðan fyrirlestur. Reynslan á ávaxtatrjárækt og ávaxtarækt í Þingeyjarsýslu á sér ekki langan sögu, þó nokkrir eldhugar hafa í gegnum árin reynt að rækta upp eplatré úr búðareplafræum í garðinum hjá sér, oftast með mjög lélegrum árangri. Í dag eru líkurnar á velgengni í slíkum tilraunum betri. Hlýnandi loftslag hefur án efa sitt að segja í þessu sambandi og er mikilvægur þáttur ekki síður en mannlegi þátturinn. Nýjum ræktunaraðferðum hefur að undanförnu verið beitt auk þess sem áhugamenn um ávaxtatré og fræðingar hafa leitað víða um veröld þ.a.m. til Kanada og Finnlands eftir efnivið sem hentar fyrir íslenskar aðstæður. Í fyrirlestrinum hjá Jóni sjáum við fyrstu niðurstöðurnar af tilraunastarfsemi hans. Niðurstöður sem lofa góðu fyrir alvöru ávaxtarækt í heimagörðum á Íslandi og mun Jón fræða okkur um reynslu sína og samstarfsmanna hans.
Fyrirlestur Jóns um ávaxtatré byrjar kl. 20:30 og er aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn Garðyrkjufélag Íslands en kr. 500,- fyrir aðra. Nýjir félagar velkomnir á stofnfundinn.