08. maí
Smári Sigurđsson er skákmeistari Gođans 2022Íţróttir - - Lestrar 89
Smári Sigurđsson vann sigur á Skákţingi Gođans/Meistaramót 2022 sem lauk í dag.
Smári fékk 5,5 vinninga af 7 mögulegum og fór taplaus í gegnum mótiđ. Smári Sigurđsson er ţví skákmeistari Gođans 2022.
Hermann Ađalsteinsson varđ í öđru sćti međ 5 vinninga. Rúnar Ísleifsson, sem einnig fékk 5 vinninga en var ađeins lćgri en Hermann á oddastigum, varđ í ţriđja sćti. Hart var barist um efstu 5 sćtin í mótinu og munađi ađeins 1 vinning á fimm efstu.
Smári Sigurđsson var ađ vinna titilinn skákmeistari Gođans í fjórđa sinn, en áđur hafđi hann unniđ titilinn árin 2007, 2008 og 2013.
Mótiđ í ár var atskákmót međ 20 mín og 5 sek/leik í umhugsunartíma og allir tefldu viđ alla.
Alls tóku 8 keppendur ţátt í mótinu sem fram fór ađ Vöglum í Fnjóskadal.
Skákţingiđ var lokapunkturinn á vetrarstarfi Gođans, en ţráđurinn verđur aftur tekinn upp međ haustinu.