Skólastarf hafið í BorgarhólsskólaAlmennt - - Lestrar 105
Skólastarf hófst í Borgarhólsskóla í dag. Íslenski fáninn við hún og nemendur mættu á Borgarhólinn í morgun ásamt foreldrum sínum.
Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir, skólastjóri hélt tölu á stuttri athöfn í Sal skólans ásamt Guðna Bragasyni, skólastjóra Tónlistarskóla Húsavíkur.
Þórgunnur þakkaði félagasamtökum sem hafa sýnt skólanum velvilja með peningagjöf. Kvenfélag Húsavíkur færði skólanum hálfa milljón að gjöf sem er ætlað að verja til húsgangakaupa fyrir nemendur og Lionsklúbbur Húsavíkur sem gaf skólanum 250 þús. kr. til tölvu og tæknimála.
Það eru 282 nemendur skráðir í skólann sem er rúmlega 5% fækkun frá fyrra ári. Það helgast meðal annars af því að fjölmennur árgangur útskrifaðist síðastliðið vor og fámennari hefur nú skólagöngu sína í fyrsta bekk. Hóp starfsfólks skipa 62 einstaklingar í mismunandi starfshlutföllum.