Skálmöld, Atrum og Darknote á SódómuAðsent efni - - Lestrar 69
Skálmöld, Atrum og Darknote leiða saman metalhestana á
Sódómu laugardaginn 28. maí. Öll böndin hafa verið orðuð við Wackenhátíðina 2011 og þegar er ljóst að tvö af
þeim, Atrum og Skálmöld, spila á þessu stærsta þungarokksfestivali heimsins í sumar.
Það þykir til tíðinda þegar þrjár íslenskar sveitir úr þessum jaðargeira eiga möguleika á því að
spila á stórum viðburðum erlendis. Þannig er óhætt að segja að þarna fari rjóminn af íslensku þungarokki og stemningin
ætti að geta orðið stórgóð, enda er Sódóma sá staður borgarinnar sem hentar hve best undir viðburð sem þennan. Þeim
sem vilja þannig upplifa svitalyktina af alvöru þungarokki í hæsta gæðaflokki er því bent á að láta sjá sig.
Miðaverðið er 1.500 krónur og tónleikarnir verða settir á klukkan tíu.