02. júl
Sæþór með þrennu á HornafirðiÍþróttir - - Lestrar 526
Völsungur gerði góða ferð á Hornafjörð þegar þeir sóttu Sindra heim á Sindravelli.
Heimamenn skoruðu í eigið mark strax í upphafi leiks en jöfnuðu síðan á 20 mínútu leiksins. En Sæþór Olgeirsson sem verið hefur á skotskónum í sumar kom Völsungi yfir mínútu síðar úr vítaspyrnu.
Í upphafi síðari hálfleiks kom Sæþór Völsungi í 3-1. Sindri náði síðan að minnka muninn á 83. mínútu áður en Sæþór fullkomnaði þrennuna og gerði út um leikinn.
Sæþór hefur skorað 12 mörk í sumar í átta leikjum og sex þeirra komið úr vítum.
4-2 útisigur í höfn á Höfn og Völsungur situr í 6. sæti 2. deildar karla með 13 stig líkt og Vestri en með betri markatölu.