29. júl
Regnbogabraut áfram lokuð fyrir akandi umferðAlmennt - - Lestrar 185
Regnbogabraut á Húsavík hefur heldur betur fengið góðar undirtektir og margir óskað eftir lengri lokun enda bæði heimamenn og ferðafólk sem nýtir götuna sem göngugötu og til myndatöku.
Á heimasíðu Norðurþings segir að ákveðið hafi verið að nýta áfram samþykkt skipulags- og framkvæmdaráðs frá 192. fundi ráðsins 2. júlí sl.og hafa Garðarsbrautina lokaða á þessum parti á meðan ferðamannastraumurinn er hvað mestur eða til 12. ágúst.