01. nóv
Tomasz Jan Horyn nýr forstjóri PCC á BakkaAlmennt - - Lestrar 15
PCC BakkiSilicon hf., sem rekur kísilver á Bakka við Húsavík, tilkynnti í dag nýjan stjórnendahóp.
mbl.is greinir frá þessu en fram kemur í tilkynningu PCC að núverandi rekstrarstjóri félagsins, Tomasz Jan Horyn, muni taka við sem forstjóri um áramótin. Hann hafi mikla þekkingu á starfsemi PCC BakkiSilicon hf. og iðnaðinum í heild sinni.
Andri Dan Traustason verður aðstoðarforstjóri og núverandi forstjóri Gestur Pétursson, mun gegna starfinu til áramóta til þess tryggja forstjóraskiptin gangi snurðulaust fyrir sig hjá félaginu. Gestur mun í kjölfarið taka við sem forstjóri Umhverfis- og Orkustofnunar.