08. des
Pepp frá NEF fyrir prófatíðAlmennt - - Lestrar 144
Síðastliðinn föstudag fór stjórn Nemendafélags Framhalds-skólans á Húsavík eða NEF rúnt um bæinn.
Fram kemur á heimasíðu skólans að tilefnið hafi verið að afhenda samnemendum þeirra jólaglaðning með hvatningu fyrir undirbúning lokaprófa.
Á Instagram síðu NEF stóð:
,,Jólasveinarnir í NEF tóku rúnt um bæinn í kvöld og gáfu nemendum jólaglaðning. Gangi ykkur vel í prófum elsku FSH-ingar! Hlökkum rosalega til að sjá ykkur (vonandi) eftir jól! Jólakveðja frá NEF''
"Frábært framtak hjá NEF, vonum að þetta gefi nemendum aukna hvatningu inní prófatíð" segir á heimasíðu FSH.