31. maí
Mynd dagsins - Belgjaslagur við höfninaMynd dagsins - - Lestrar 257
Mynd dagsins var tekin í dag þegar nemendur úr Borgar-hólsskóla notuðu góðviðrið til að skemmta sér við Húsa-víkurhöfn.
Þau fóru í belgjaslag í anda Sjómannadags og hoppuðu í sjóinn.
Viðburður þessi var í samstarfi við björgunar-sveitina Garðar og GPG Seafood sem bauð nemendum upp á heit böð í körum þar sem gott var að ylja sér eftir buslið í sjónum.
Á myndinni eigast við í belgjaslag þeir Kristján Gunnar jóhannsson og Einar Örn Elíasson th., engum sögum fer af því hvor hafði betur.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.