Menningar- og hrútadagar á Raufarhöfn

Boðið verður uppá fjölbreytta og skemmtilega dagskrá á menningar- og hrútadögum á Raufarhöfn sem fara fram næstu daga.

Menningar- og hrútadagar á Raufarhöfn
Almennt - - Lestrar 195

Boðið verður uppá fjölbreytta og skemmtilega dagskrá á menningar- og hrútadögum á Raufarhöfn sem fara fram næstu daga.

Boðið verður uppá pókerkvöld, gönguferð, bíósýningu, hagyrðingakvöld og margt fleira.

Einn af hápunktum hátíðarinnar er Hrútadagurinn 2. október í Faxahöllinni á Raufarhöfn. Þar setur Níels Árni dagskrá kl 14:00.
Síðan verður bókakynning og stígvélakast og barnadagskrá. Sala og uppboð verður á hrútum sem Níels Árni Lund stjórnar.

Um kvöldið verða tónleikar með Hvanndalsbræðrum í félagsheimilinu Hnitbjörgum.

Á heimasíðu Norðurþings eru allir áhugasamir hvattir til  að kynna sér dagskrána á menningar-og hrútadögum á Raufarhöfn.

Hægt er að sjá dagskrána hér


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744