Kristján býður sig fram til vígslubiskups á Hólum

Kristján Björnsson sóknarprestur í Vestmannaeyjum býður sig fram til vígslubiskups á Hólum.

Kristján býður sig fram til vígslubiskups á Hólum
Aðsent efni - - Lestrar 706

Sr. Kristján Björnsson.
Sr. Kristján Björnsson.

Kristján Björnsson sóknarprestur í Vestmannaeyjum býður sig fram til vígslubiskups á Hólum.

“Ég býð mig fram til vígslubiskups á Hólum vegna þess að ég hef áhuga á að vinna með öllu því góða fólki sem starfar í kirkjunni í umdæminu. Ég legg áherslu á stuðning vígslubiskups við þjónustu kirkjunnar og boðun hennar á hverjum stað, gott samfélag og trúmennsku.

Ég vígðist í Hóladómkirkju 1989 og þjónaði í Vestur Húnavatnssýslu fyrstu níu árin, en hef verið sóknarprestur í Vestmannaeyjum frá 1998. Það er von mín að reynslan af prestsþjónustunni og ýmsum trúnaðarstörfum í þágu kirkjunnar geti nýst vel í embætti vígslubiskups. 

Það virkar vel á mig að embætti biskupanna eru í deiglu innan kirkjunnar og það þarf að taka stöðu þeirra og hlutverk til umræðu”. Segir í tilkynningu frá Kristjáni en eiginkona hans er Guðrún Helga Bjarnadóttir, leikskólakennari og leiðbeinandi hjá Blátt áfram.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744