Komu með sex íbúða raðhúseiningar til Húsavíkur

Bjarg íbúðafélag, sem er óhagnaðardrifið íbúðafélag, hefur unnið að því síðustu mánuði að byggja sex íbúða raðhús að Lyngholti 42-52 á Húsavík í samstarfi

Bílalestin nálgast Húsavík.
Bílalestin nálgast Húsavík.

Bjarg íbúðafélag, sem er óhagnaðardrifið íbúðafélag, hefur unnið að því síðustu mánuði að byggja sex íbúða raðhús að Lyngholti 42-52 á Húsavík í samstarfi við Norðurþing.

Um er að ræða svokölluð kubba-hús en íbúðirnar voru smíðaðar hjá SG húsum ehf. á Selfossi.

Þær eru í tólf einingum sem fluttar voru á öflugum flutningabifreiðum til Húsavíkur.

Á meðfylgjandi myndum má sjá bílalestina nálgast Húsavík á tólfta tímanum í morgun sem og frá því er einingarnar voru hífðar á grunninn.

Reiknað er með að íbúðirnar, sem eru fjögurra herbergja, verði tilbúnar með vorinu.

Ljósmynd Hafþór

Starfsmenn SG húsa gera allt klárt í morgunsárið.

Ljósmynd Hafþór

Ljósmynd Hafþór

Ljósmynd Hafþór

Ljósmynd Hafþór

Ljósmynd Hafþór

Ljósmynd Hafþór

Ljósmynd Hafþór

Ljósmynd Hafþór

Ljósmynd Hafþór

Svona var staðan um kvöldmatarleytið, eftir að hífa síðustu eininguna.

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744