10. jan
Kepptu í Færeyjum með U16 í blakiÍþróttir - - Lestrar 413
Völsungarnir Agnes Björk Ágústsdóttir og Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir voru nýlega valdar í U16 ára blaklandslið Íslands sem keppti á Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Færeyjum.
Ísland keppti þar fjóra leiki en Norðurlöndin áttu þar landslið auk Írlands og Eistlands. Ísland keppti lokaleikinn um 5. sætið við Írland og höfðu þær írsku sigur 3-1.
Íslensku stelpurnar enduðu því í 6. og neðsta sæti en eins og Lárus Jón Thorarensen aðstoðarþjálfari Íslands segi á blakfréttir.is koma þær heim reynslunni ríkari enda gífurlega mikilvægt fyrir leikmenn á þessum aldri að fá að spila eins mikið og hægt er við aðrar þjóðir.