Jólaskemmtun Samhljóms er í dagAlmennt - - Lestrar 158
Hin árlega
jólaskemmtun Samhljóms - styrktarfélags verður haldin á Fosshóteli Húsavík (Félagsheimili Húsavíkur) í dag kl.16:00.
Um er að ræða styrktartónleika, því öll innkoma rennur í styrki til Þingeyinga sem hafa lent í áföllum, s.s. slysum eða
fengið erfiða sjúkdóma.
Fram koma Hjálmar og þeir!
Hjálmar Ingimarsson, Guðni Bragason, Sigurður Illugason, Jón Gunnar Stefánsson og Gunnar Illugi Sigurðsson.
Frábærir gestir:
Bylgja Steingrímsdóttir, Aðalsteinn Júlíusson, Kristján Halldórsson, Halla Marín Hafþórsdóttir, Daníel
Borgþórsson, Valdís Jósefsdóttir og félagar úr Karlaklúbbnum Sófíu.
Tónlist, getraunir og margt fleira skemmtilegt - vegleg verðlaun í boði.
Kaffisala, kaffi, kakó og smákökur, meðan á skemmtun stendur.
Þingeyingar, eigum góða stund saman fyrir jólin, skemmtun okkur með frábæru tónlistarfólki og styrkjum um leið gott málefni.
Aðgangseyrir aðeins 1000kr.
Tekið er á móti frjálsum framlögum á staðnum og bankaútibúum.
Stjórn Samhljóms.