27. des
Haddi í KAÍþróttir - - Lestrar 564
Húsvíkingurinn Hallgrímur Jónasson hefur gert 4 ára samning við KA.
Hallgrímur hefur síðustu ár spilað í Danmörku og verður mikill og góður liðsstyrkur fyrir KA í Pepsideildinni næsta sumar.
Hallgrímur á að baki 16 landsleiki fyrir Íslandshönd og á heimasíðu KA segir að þetta séu miklar gleðifréttir fyrir félagið.
Haddi er sjötti Völsungurinn sem er á mála hjá KA en fyrir eru bræðurnir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn Steingrímssynir, Elfar Árni Aðalsteinsson, Ásgeir Sigurgeirsson og Sæþór Olgeirsson sem gekk til liðs við Akureyrarliðið í haust.