06. jún
Guðrún þóra valin á úrtaksæfingar U15 á AkranesiÍþróttir - - Lestrar 308
Völsungurinn Guðrún Þóra Geirsdóttir hefur verið valin af Lúðvíki Gunnarssyni til að taka þátt í úrtaksæfingum U15 sem fara fram á Akranesi dagana 11.-15. júní.
Guðrún Þóra er ungur og efnilegur leikmaður sem hefur undanfarið verið að fá stærra hlutverk í meistaraflokki kvenna. Hún spilaði sinn mótsleik með meistaraflokki þegar hún var í byrjunarliði á móti Sindra í Mjólkurbikarnum 15. maí síðastliðinn.
Lúðvík valdi 31 leikmann til að taka þátt í verkefninu að þessu sinni og hér má sjá hann.