Guðrún þóra valin á úrtaksæfingar U15 á Akranesi

Völsungurinn Guðrún Þóra Geirsdóttir hefur verið valin af Lúðvíki Gunnarssyni til að taka þátt í úrtaksæfingum U15 sem fara fram á Akranesi dagana 11.-15.

Guðrún þóra valin á úrtaksæfingar U15 á Akranesi
Íþróttir - - Lestrar 307

Guðrún Þóra Geirsdóttir.
Guðrún Þóra Geirsdóttir.

Völsungurinn Guðrún Þóra Geirsdóttir hefur verið valin af Lúðvíki Gunnarssyni til að taka þátt í úrtaksæfingum U15 sem fara fram á Akranesi dagana 11.-15. júní.

Guðrún Þóra er ungur og efnilegur leikmaður sem hefur undanfarið verið að fá stærra hlutverk í meistaraflokki kvenna. Hún spilaði sinn mótsleik með meistaraflokki þegar hún var í byrjunarliði á móti Sindra í Mjólkurbikarnum 15. maí síðastliðinn.

Lúðvík valdi 31 leikmann til að taka þátt í verkefninu að þessu sinni og hér má sjá hann.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744