17. jan
Guðrún Þóra Geirsdóttir valin á U-16 ára úrtaksæfingarÍþróttir - - Lestrar 176
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 kvenna í knattspyrnu, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum í Hafnarfirði 29.-31. janúar næstkomandi.
Guðrún Þóra er flottur fulltrúi Völsunga í þessum hópi.
Hún hefur verið áberandi leikmaður með 3.flokki en ekki síður sem byrjunarliðsleikmaður í meistaraflokki Völsungs undanfarna mánuði.