Glæsilegur Mærusigur hjá strákunum

Völsungar unnu glæstan 4-0 Mærudagssigur á Reyni Sandgerði í gær en leikið var á PCC-vellinum.

Glæsilegur Mærusigur hjá strákunum
Íþróttir - - Lestrar 138

Jakob Gunnar fagnar síðara marki sínu.
Jakob Gunnar fagnar síðara marki sínu.

Völsungar unnu glæstan 4-0 Mærudagssigur á Reyni Sandgerði í gær en leikið var á PCC-vellinum.

Jakob Gunnar Sigurðsson, sem samdi á dögunum við KR, skoraði tvö mörk og það fyrra strax á 7. mínútu leiksins.


Simon Colina skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu tuttugu mínútum síðar og Jakob Héðinn Róbertsson bætti því þriðja á 67. mínútu.

Jakob Gunnar bætti við öðru marki sínu og fjórða marki Völsungs fimm mínútum síðar og þrjú stig í höfn.

Völsungur er í 4. sæti deildarinnar með 25 stig einso KFA en með lakari markatölu. Víkingur Ó er í öðru sæti með 26 stig og Selfoss er á toppnum með 32 stig.

Ljósmynd Hafþór

Símon skorar beint úr aukaspyrnu.

Ljósmynd Hafþór

Jakob Héðinn skýtur að marki gestanna.

Ljósmynd Hafþór

Jakob Gunnar í þann mund að skora sitt annað mark.

Ljósmynd Hafþór

Mærudagsleikirnir eru ávallt vinsælir.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744