Gengið í Hraunstakkaborg

Næsta ganga Ferðafélagsins Norðurslóðar verður farin laugardaginn 8. september en þá verður gengið í Hraunstakkaborg í Kelduhverfi.

Gengið í Hraunstakkaborg
Aðsent efni - - Lestrar 703

Í Kelduhverfi.
Í Kelduhverfi.

Næsta ganga Ferðafélagsins Norðurslóðar verður farin  laugardaginn 8. september en þá verður gengið í Hraunstakkaborg í Kelduhverfi.

Klettaborgin er einstök náttúrusmíð og búast má við fallegum haustlitum í heiðinni. Þetta er auðveld ganga sem hefst við bílastæðið við Garðskirkju í Kelduhverfi kl. 13:00.

Göngugarpar á öllum aldri eru hvattir til að mæta í hressandi og heilsusamlega útivist, með gott skap og nesti í bakpoka.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744