05. sep
Gengið í HraunstakkaborgAðsent efni - - Lestrar 703
Næsta ganga Ferðafélagsins Norðurslóðar verður farin laugardaginn 8. september en þá verður gengið í Hraunstakkaborg í Kelduhverfi.
Klettaborgin er einstök náttúrusmíð og búast má við fallegum haustlitum í heiðinni. Þetta er auðveld ganga sem hefst við bílastæðið við Garðskirkju í Kelduhverfi kl. 13:00.
Göngugarpar á öllum aldri eru hvattir til að mæta í hressandi og heilsusamlega útivist, með gott skap og nesti í bakpoka.