04. júl
Gatnagerð að hefjast í ReitnumAlmennt - - Lestrar 326
Fyrsti áfangi, vegna gatnagerðar í Reitnum ofan við Grundargarð er að fara í gang.
Frá þessu segir á heimasíðu Norðurþings en upphafsfundur verksins var haldinn 15. júní sl. en verktakinn er Vinnuvélar Eyþórs ehf.
Verkís vann gögnin með starfsmönnum Norðurþings, hélt utan um verðkönnunina og samningagerð.
Áhugi er á byggingum á svæðinu og nú þegar er búið að úthluta tveimur lóðum fyrir fjölbýlishús við Stóragarð 20 og Ásgarðsveg 29.