Gamlárshlaup Völsungs

Gamlárshlaup Völsungs fer fram í annað skipti á Gamlársdag kl. 11 og verður ræst af stað frá sundlauginni.

Gamlárshlaup Völsungs
Íþróttir - - Lestrar 486

Gamlárshlaup Völsungs fer fram í annað skipti á Gamlársdag kl. 11 og verður ræst af stað frá sundlauginni.

Fram til ársins 2016 hafði Hlaupahópurinn Skokki séð um framkvæmdina en þá tók Völsungur við keflinu. 

Í boði verða þrjár vegalengdir: 3 km skemmtiskokk án tímatöku, --og-- 5 km og 10 km með tímatöku. 

Hressing frá MS verður á boðstólnum eftir hlaup og svo býður Norðurþing frítt í sund. Hlaupið er hugsað fyrst og fremst sem skemmtilegt fjölskyldusprikl á þessum síðasta degi ársins.

Víða um land hefur þessi gamlárshlaups-hefð verið að festast í sessi og má þar nefna Sauðárkrók, Akureyri og Egilsstaði sem góð dæmi svo ekki sé minnst á Gamlárshlaup ÍR sem er orðinn risavaxinn viðburður.

Hér á Húsavík hefur hlaupið verið haldið síðan 2009 og gengið afar vel. Í fyrra var sett glæsilegt þátttökumet þegar um 60 manns tóku þátt - tvöföldun frá árinu áður. "Vonandi getum við bætt metið núna enda spáir fínu veðri". Segir í tilkynningu frá Völsungi. 

 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744