01. feb
Fyrirlestur um leiðangra Curiosity og VoyagerAðsent efni - - Lestrar 758
Sævar Helgi Bragason, ristjóri Stjörnufræðivefsins, fjallar um leiðangra Curiosity og Voyager á fyrirlestri sem haldin er á vegum Könnunarsögusafnsins á Húsavík Cape Hotel á morgun. Við undirbúning leiðangurs Curiosity til Mars komu vísindamenn NASA hingað í Þingeyjarsýslur til að kanna hliðstæður umhverfis hér og á Mars.
Fyrirlesturinn hefst kl. 13.00 sunnudaginn 2. febrúar og er í sal Húsavík Cape Hotel að Laugarbrekku 26. Aðgangur er ókeypis.