Friðrik Sigurðsson: Ágæti þingmaðurAðsent efni - - Lestrar 649
En á dauða mínum átti ég von að það kæmi til þess að ég þyrfti að skrifa ykkur bréf og kvarta yfir því að stjórnvöld hyggðust segja Þingeyingum stríð á hendur. Það er ekkert annað en stríðsyfirlýsing við íbúa hér að ætla að taka 85% af fjármagni frá sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga.
Ég geri mér grein fyrir því, að með aðgangi að góðu Þingeysku lofti eru allar líkur á því að við verðum allra manna heilbrigðust á landinu góða en að halda að fólk á svæðinu hætti að verða sjúkt er fráleitt? Því er okkur Þingeyingum ætlað að taka á okkur 9% af skerðingu í heilbrigðisþjónustu?
-
Ég hvet ykkur til að kíkja á landakortið og sjá hvað starfssvæði HÞ er stórt.
-
Er ykkur ekki ljóst hvaða vegalengdir er um að ræða á starfssvæði HÞ t.d. frá Þórshöfn til Húsavíkur?
- Er ykkur ljóst hvaða áhrif þetta hefur á samfélagið í Þingeyjarsýslu. Þetta jafngildir því að 2.500 manns væri sagt upp á einu bretti í Reykjavík
- Samkvæmt framkomnum upplýsingum var bent á það að nauðsynlegt væri að hafa eitt varasjúkrahús í nágrenni Reykjavíkur, ef þið eruð samkvæmir sjálfum ykkur með þetta þá þarf að sjálfsögðu að vera varasjúkrahús fyrir Akureyri
- Samgöngur til Akureyrar eru ekki opnar alla daga ársins vegna veðurs eiga þá sjúklingar bara að deyja veðurtepptir á leiðinni á sjúkrahús þar?
Ég hef ekki séð rökin fyrir því að þessar snargölnu hugmyndir komi til með
að spara fjármagn úr ríkissjóði Íslands, sjóði sem ég greiði í til jafns við aðra þegna landsins. Hvernig
dettur ykkur í hug að hægt sé að halda úti starfsemi með 15% af því fjármagni sem áður var til sama rekstrar, rekstrar sem hefur
verið í stanslausum sparnaði og aðhaldi síðastliðin 10-15 ár. Ef einhver ykkar hafa komið nálægt rekstri fyrirtækja
þá ætti ykkur að vera ljóst að fastur kostnaður við rekstur er alltaf meiri en 15% ALLTAF! Það eru því bara
fíflalæti að láta frá sér hugmyndir sem bjóða okkur Þingeyingum upp á að reka sjúkrahúshlutann á 15% af
núverandi framlagi til reksturs.
Ég ítreka skoðun mína frá því í júní að ykkur ber að standa vörð um grunnþætti í íslensku
samfélagi sem eru að standa vörð heilbrigðisþjónustuna og öryggismál borgarana.
Þetta eru lykilatriðin í okkar samfélagi ásamt því að tryggja menntun þjóðarinnar.
Ég legg því allt mitt traust á fjárlaganefnd Alþingis að hún leiðrétti þann órétt sem við Þingeyingar erum
beittir í framlögðu fjárlagafrumvarpi.
Við erum að sjálfsögðu til viðræðu um að hagræða og leita allra leiða til að spara í rekstri ríkissjóðs.
Ég reikna að sjálfsögðu með því að fá svör frá ykkur öllum um þetta alvarlega mál sem fyrir ykkur er lagt
hér í þessum tölvupósti.
Virðingarfyllst,
Friðrik Sigurðsson
Höfðavegi 5
640 Húsavík
Erindi þetta var sent á fjárlaganefnd Alþingis í gær ásamt afriti á fjármálaráherra og velferðarráðherra