13. nóv
Framsýn styrkir Blakdeild VölsungsÍþróttir - - Lestrar 57
Framsýn og Blakdeild Völsungs hafa gert með sér samkomulag um að félagið styrki starfsemi deildarinnar næstu tvö árin.
Í tilkynningu segir að um sé að ræða framlengingu á fyrri samningi.
Styrkurinn felst í því að Framsýn tekur þátt í búningakaupum á blaklið Völsungs auk þess sem félagið fær auglýsingu á vegg í Íþróttahöllinni á Húsavík.
Framsýn hefur lengi verið sterkur bakhjarl æskulýðs- og íþróttastarfs á félagssvæðinu sem eru Þingeyjarsýslur frá Vaðlaheiði að Raufarhöfn.