Frá íbúafundi Norðurþings um sorpmál

Norðurþing stóð fyrir íbúafundi á dögunum þar sem fundarefnið var nýtt samræmt flokkunarkerfi fyrir íbúa á Húsavík og í Reykjahverfi.

Frá íbúafundi Norðurþings um sorpmál
Almennt - - Lestrar 161

Norðurþing stóð fyrir íbúafundi á dögunum þar sem fundar-efnið var nýtt samræmt flokkunarkerfi fyrir íbúa á Húsavík og í Reykjahverfi.

Á fundinum voru kynntar breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs og hvað þær breytingar þýða.

Frá þessu segir á heimasíðu Norðurþings.

Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins, kynnti nýtt flokkunarkerfi, t.a.m. grenndargáma og útfærslu á fjórðu tunnunni. Þá sátu aðilar frá Íslenska gámafélaginu í pallborði og svöruðu spurningum fundargesta. Fundarstjóri var Soffía Gísladóttir.

Næstu skref í ferlinu eru innleiðing hins nýja kerfis, dreifing fjórðu tunnunnar og nýjar merkingar.. Áætlað er að ljúka því nú í vor ásamt því að koma upp grenndarstöðvum fyrir málma, gler og textíl. Einnig verður dreift kynningarbæklingum í hús til frekari glöggvunar á hinu nýja kerfi.

Hér má finna hlekk á þau gögn sem kynnt voru á fundinum

Í framhaldinu verður farið í að útfæra breytingarnar í byggðunum austan við, í Kelduhverfi, Öxarfjarðarhéraði og á Raufarhöfn og nágrenni.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744