11. okt
Fjórar Völsungsstelpur á hæfileikamót KSÍ og N1Íþróttir - - Lestrar 498
Völsungsstelpurnar Hildur Anna Brynjarsdóttir, Marta Sóley Sigmarsdóttir, Guðrún Þóra Geirsdóttir og Brynja Ósk Baldvinsdóttir taka þátt í hæfileikamóti KSÍ og N1 sem fram fer í Akraneshöllinni á Akranesi dagana 14-15. okt.
Mótið fer fram undir stjórn Dean Martin, sem hefur ferðast um landið með Hæfileikamótun KSÍ og N1 og er þetta mót framhald af þeirri vinnu.
Um er að ræða stelpur sem eru í 4. flokki, 13 til 14 ára, og hafa þær mætt á æfingar og fengið annan fróðleik í gegnum Hæfileikamótun KSÍ og N1. (volsungur.is)