Einni deild á Grænuvöllum lokað vegna mögulegs smitsAlmennt - - Lestrar 135
Ein deild í leikskólanum Grænu-völlum á Húsavík er lokuð í dag á meðan beðið er eftir niðurstöðu úr sýnatöku sem barn á deildinni fer í dag.
Fólk sem var gestkomandi á heimili barnsins í síðustu viku greindist með veiruna um helgina.
Rúv.is greinir frá þessu en þar segir Jón Höskuldsson fræðslufulltrúi Norðurþings að rúmlega 10 börn séu heima í dag til öryggis.
„Við vildum ekki taka neina sénsa og lokuðum þessari deild í dag á meðan viðkomandi barn bíður eftir niðurstöðu úr skimun,“ segir Jón.
Hann segir að enn sem komið er þyki ekki nauðsynlegt að loka öllum leikskólanum né senda börn eða foreldra í skimun. Staðan verði endurmetin seinna í dag og foreldrar upplýstir um framhaldið.