25. ágú
Curiomótið í knattspyrnu fer fram á sunnudaginnÍþróttir - - Lestrar 635
Sunnudaginn nk. verður Curiomótið í knattspyrnu haldið á Húsavík en þar leiða saman hesta sína lið í 8., 7., og 6. flokki af Norður- og Austurlandi.
Curio hefur tekið að sér að styrkja mótið og mun gera það næstu ár og er því fagnað á heimasíðu Völsungs.
Þar segir jafnframt að níu félög hafi skráð sig til móts með a.m.k 88 lið og það verða því um 500 iðkendur að spila á Húsavíkurvelli á sunnudaginn.