28. nóv
Býður upp málverk til styrktar Velferðarsjóði ÞingeyingaAlmennt - - Lestrar 129
Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn á að styrkja Velferðarsjóð Þingeyinga segir Anna Soffía Halldórsdóttir sem efnt hefur til uppboðs á málverki eftir hana.
"Sjóðurinn á undir höggi að sækja til að aðstoða þá sem þess þurfa. Fólkið okkar sem er að berjast jafnvel í bökkum til að ná endum saman. Hjálpum, því að það gefur okkur svo mikið, yl í hjartað. Þetta verk 80x60 er til sölu og fer hver einasta króna til Velferðarsjóðs.
80 þúsund er sett á verkið en auðvitað má bjóða hærra. Hægt að hafa samband við mig í einkaskilaboði" Skrifar Anna Soffía á Fésbókarsíðu sinni og koma nú.